Logo Contact us

Jólatónleikar KK og Ellen

Jólatónleikar KK og Ellenar hafa verið einn af ómissandi og föstu liðunum í aðdraganda jóla. Í mörg ár hafa þau haldið hefðina og komið saman, ýmist þau tvö eða ásamt hljómsveit sem spilað hefur með þeim.

Tónleikarnir hafa verið haldnir víða og þetta árið munu þau meðan annars koma fram í Stapa í Hljómahöll. Þar munu þau ásamt nokkrum af okkar bestu hljóðfæraleikurum flytja mörg okkar ástsælustu jólalög í bland við eigin lög. Einstök aðventustemning skapast á þessum tónleikum þar sem látlaus og hugljúfur flutningur hefur jafnan einkennt þeirra tónlist.

KK og Ellen munu koma fram ásamt hljómsveit í Stapa í Hljómahöll þann 12. desember. Hljómsveitina skipa:

Jón Ólafsson, hljómsveitarstjóri
Andri Ólafsson, bassi
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Lilja Valdemarsdóttir, franskt horn
Jón Ólafsson, hljómborð
KK, gítar

Miðasala fer fram á midi.is en miðar fást einnig í móttöku Hljómahallar og Rokksafns Íslands að Hjallavegi 2 í Reykjanesbæ og þar er hægt að greiða með debetkortum og seðlum.

Hvar og Hvenær?

Salur:

Stapi

Dagsetning:

Klukkan hvað?:

Miðaverð:

Kr. 5590