Logo Contact us

Júníus Meyvant á trúnó - Aukatónleikar kl.18:00

UPPSELT 9. FEBRÚAR KL.21:00
AUKATÓNLEIKAR SAMA DAG KL.18:00

Það gleður okkur mikið að segja frá því að vegna mikillar eftirspurnar verður Júníus Meyvant með aukatónleika klukkan 18:00 sama dag. Miðasala er hafin inn á tix.is og hljomaholl.is.

Það er með mikilli gleði að tilkynna að Júníus Meyvant verður á trúnó í Hljómahöll þann 9. febrúar næstkomandi.

Júníus Meyvant gaf út nýja breiðskífu þann 25. janúar sl. Af því tilefni er hann á leið í mikla tónleikaferð um heiminn sem hann ætlar að þjófstarta á Íslandinu góða. Júníus Meyvant hefur eytt mestum hluta þessa árs í hljóðveri að vinna að nýju plötunni, ‘Across the Borders’, og hefur hann því lítið spilað á tónleikum undanfarið en nú snýr hann aftur með ný lög og nýja og stærri hljómsveit með sér á sviðinu.

Tónleikaröðin Trúnó hefur slegið í gegn í Hljómahöll undanfarin misseri. Hugmyndin á bakvið tónleikaröðina er sú að halda stóra tónleika þar sem engu er til sparað en halda þá á minnsta sal Hljómahallar sem tekur aðeins 100 gesti í sæti. Þá eru listamennirnir sem koma fram á tónleikaröðinni yfirleitt vanari að spila fyrir stærri hóp áhorfenda.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri að sjá þennan skemmtilega tónlistarmann á trúnó áður en hann sigrar heiminn.

 

Hvar og Hvenær?

Salur:

Berg

Dagsetning:

Klukkan hvað?:

Miðaverð:

Kr. 5990