Magnús og Jóhann á trúnó (UPPSELT)
-UPPSELT-Hljómahöll heldur áfram með tónleikaröðina Trúnó sem hófst síðast liðinn vetur og sló svo sannarlega í gegn. Magnús og Jóhann eru fyrstu listamennirnir sem eru tilkynntir en þeir verða á trúnó í Bergi í Hljómahöll fimmtudaginn 1. nóvember.
Magnús og Jóhann hafa gefið út fjölda laga sem allir landsmenn þekkja. Má þar á meðal nefna lögin Álfar, Söknuður, Blue Jean Queen, Jörðin sem ég ann, Í Reykjavíkurborg og Þú átt mig ein. Þetta verður kvöldstund sem enginn aðdáandi þeirra Magnúsar og Jóhanns ættu að láta framhjá sér fara.
Tónleikar hefjast kl. 20:00. Húsið opnar klukkan 19:00.
Miðasala hefst kl. 11:00 föstudaginn 7. september.
Hvar og Hvenær?
Salur:
Berg
Dagsetning:
Klukkan hvað?:
Miðaverð:
Kr. 4900