HLJÓMAHÖLL

Hljómahöll er tónlistar-, menningar- og ráðstefnuhús Reykjanesbæjar. Þar hefur skapast mikilvægur vettvangur fjölskrúðugs mannlífs, ráðstefnuhalds, funda og menningarviðburða í Reykjanesbæ. Hið sögufræga félagsheimili Stapi er hluti af Hljómahöll og þjónar áfram sínu hlutverki eins og áður. Auk þess er Rokksafn Íslands hluti af Hljómahöll en safnið er mikið aðdráttarafl fyrir innlenda og erlenda ferðamenn sem vilja kynnast og upplifa popp- og rokksögu Íslands.  Í húsi Hljómahallar á Tónlistarskóli Reykjanesbæjar sitt heimili ásamt aðalsafni Bóksasafni Reykjanesbæjar.

Pantaðu sal

Hljómahöll hentar undir viðburði af öllum stærðum og gerðum. Árshátíðir, ráðstefnur, fundir, brúðkaup o.s.frv. Í Hljómahöll er veisluþjónusta sem leggur mikið upp úr faglegri og persónulegri þjónustu. Fyrirspurnir skulu sendast á info@hljomaholl.is.