Logo Contact us

Hlýja, von og kærleikur - Styrktartónleikar

Fyrir jólin greindist hinn sjö ára gamli Guðmundur Atli með bráðahvítblæði.

Guðmundur er nemandi í 2.SS í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ. Hann býr hjá ömmu sinni og afa sem standa eins og klettar við hlið hans og gera allt til þess að reyna að stytta honum stundirnar á spítalanum.
Guðmundur eyddi jólum og áramótum upp á barnaspítala.
Í gegnum allt hefur hann haldið í gleðina og brosið, enda einstaklega brosmildur og lífsglaður drengur.

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 1991 til að styðja við bakið á krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, og til að berjast fyrir réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera. 

Ákveðið hefur verið að halda tónleika til styrktar Guðmundar og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

Hópur af frábærum tónlistarmönnum voru tilbúin að taka þátt og gefa vinnu sína.


Fram koma:

Páll Óskar 

Valdimar Guðmundsson

Blaz Roca 

Herra Hnetusmjör

María Ólafs

Shades of Reykjavík

Sígull


…… Einnig koma bekkjarsystkini Guðmundar fram og Sesselja Ósk jólastjarna. 



Styrktaraðilar eru:

Kaffitár

Ölgerðin

Vífilfell

Hljóðbylgjan FM 101.2

Hamborgarabúlla Tómasar

Ólsen Ólsen

Subway

Langbest


Tónleikarnir verða haldnir í Hljómahöll/Stapa, Reykjanesbæ, og munu þeir hefjast kl.16.
Húsið opnar kl.15
Miðaverð er 1500 kr ef keypt er á tix.is, en 2000 kr við hurð.
Veitingasala verður á staðnum.

Miðasala er hafin á https://tix.is/is/event/2488/hlyja%2c-von-og-kærleikur/

Ef þú kemst ekki, eða vilt greiða meira fyrir miðann, þá eru frjáls framlög að sjálfsögðu vel þegin.
Þau eru lögð inná þessa reikninga hér:

Guðmundur Atli:
0542-14-404971
190808-4080


Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna:
301-26-545
630591-1129

Hvar og Hvenær?

Salur:

Stapi

Dagsetning:

Klukkan hvað?:

Facebook:

https://www.facebook.com/events/1717473828486571/1717724118461542/

Miðaverð:

Kr. 1500